Viðskipti erlent

Milljónir gamalla farsíma safna ryki á dönskum heimilum

Mikill meirihluti Dana hendir ekki gamla farsímanum sínum þegar nýr er keyptur. Milljónir gamalla farsíma safna því ryki í geymslum á dönskum heimilum.

Þetta er niðurstaða úttektar sem unnin var af símafyrirtækinu Telenor. Í henni kemur fram að yfir 70% Dana geymir gamla farsímann sinn þótt nýr hafi verið keyptur. Og 40% Dana eiga tvo gamla farsíma í hirslum sínum. Þetta þýðir að um fimm milljónir gamalla farsíma safna nú ryki á dönskum heimilum.

Í frétt á vefsíðu börsen um málið segir að í úttektinni komi m.a. fram að 34% Dana geyma gömlu farsímana sína þar sem aðrir úr fjölskyldunni eða nánir vinir geti hugsanlega notað þá og 16% Dana geyma símana þar sem þeir vita ekki hvar hægt sé að skila þeim inn.

Mattias Ringqvist einn af forstjórum Telenor segir að í rauninni sé lítil not hægt að hafa af gömlum farsímum en þeir virðist hafa eitthvað tilfinningalegt gildi hjá stórum hluta eigenda sinna. Ringqvist segir að þetta sé eins og að geyma öll númerin hjá gömlu kærustunum þegar maður er kominn í nýtt ástarsamband.

Í úttektinni kemur fram að um helmingur Dana keypti sér nýjan farsíma á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×