Viðskipti erlent

Kínverjar framleiða fleiri bíla en Evrópubúar

Í ár mun það gerast í fyrsta sinn í sögunni að Kínverjar munu framleiða fleiri bíla en Evrópubúar.

Þetta kemur fram í frétt í Financial Times sem byggir á mati sérfræðinga. Alls munu Kínverjar framleiða 19,6 milljónir bíla í ár en í Evrópu verða 18,3 milljónir bíla framleiddir. Á síðasta ári voru rúmlega milljón fleiri bílar framleiddir í Evrópu en í Kína.

Fram kemur í fréttinni að frá árinu 2000 hefur framleiðsla á bílum tífaldast í Kína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×