Viðskipti erlent

Erlendar eignir Dana tæplega 14.000 milljarðar

Nýjar tölur frá seðlabanka Danmerkur sýna að erlendar eignir Dana nema nú 610 milljörðum danskra kr. eða tæpum 14.000 milljörðum kr. Til samanburðar má nefna að hrunárið 2008 skulduðu Danir 170 milljarða danskra kr. í útlöndum.

Fjallað er um málið á vefsíðunni business.dk. Þar segir að þessi staða sé einstök enda geti fáar aðrar þjóðir í heiminum státað af álíka miklum erlendum eignum.

Þá segir að þetta sé athyglisvert í ljósi þess að á síðustu árum hafi samkeppnishæfni landsins hrakað, hagvöxtur sé lítill, atvinnuleysið fari vaxandi og verð á fasteignum hefur lækkað töluvert.

Það sem skýrir þessa stöðu að stærstum hluta er mjög myndarlegur afgangur á viðskiptajöfnuði landsins ásamt gífurlegum sparnaði innan einkageirans frá því að kreppan skall á.

Danski seðlabankinn áætlar að á þessu ári muni erlendar eignir Dana vaxa í 700 milljarða danskra kr. og að árið 2014 verða þær orðnar 800 milljarðar danskra kr.

Hið neikvæða við stöðuna er hinn mikli sparnaður sem liggur að baki þessari eignastöðu. Ef Danir fengjust til að nota hluta af sparnaði sínum í neyslu innanlands myndi það létta mjög róðurinn fyrir efnahag landsins í heild með því að auka hagvöxtinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×