Viðskipti erlent

Allar kortagreiðslur í Páfagarði stöðvaðar

Seðlabanki Ítalíu hefur stöðvað allar greiðslur með kortum í Páfagarði. Því verða allir sem þar búa eða koma sem ferðamenn að greiða með reiðufé.

Ákvörðun þessi var tekin þar sem Páfagarður hefur enn ekki innleitt reglur Evrópusambandsins um peningaþvætti en frestur til þess rann út um áramótin.

Í framhaldinu hefur viðskiptabanki Páfagarðs, Deutsche Bank Italia, gert allar útstöðvar sínar og hraðbanka óvirka innan Páfagarðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×