Síbreytilegt Hyldýpi 12. desember 2012 11:30 Ragnheiður Harpa Leifsdóttir ásamt Helene Inga Stankiewicz, sem flytur tónlistina í verkinu ásamt Þórði Hermannssyni.
Hópurinn Sublimi frumsýnir sviðsverkið Hyldýpi eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur í Gamla bíó á föstudag. Verkið er síbreytilegt og lagar sig að aðstæðum. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir útskrifaðist af fræða- og framkvæmdasviði Listaháskóla Íslands vorið 2011. Útskriftarverkefni hennar, Dagksrá um eldingar, vakti athygli erlendra hátíðarhaldara þegar það var sýnd á sviðslistahátíðinni LÓKAL sama ár, og báðu hana að semja nýtt verk. Afraksturinn er Hyldýpi, sem frumsýnt verður í Petersen svítunni í Gamla Bíó á föstudag, en áður hefur verkið verið sýnt í Danmörku og á sviðslistahátíðinni Baltic Circle í Helsinki. Hún lýsir sýningunni sem sjónrænu ljóði og kveðst hafa fengið hugmyndina frá ömmu sinni. "Hún býr til dagskrá um hugðarefni sín, til dæmis sagnakvöld um kvenpersónur þar sem hún býður vinum og fjölskyldu inn í stofu og flytur dagskrána sem samanstendur af söng, texta og ljóðum." Sýningin er byggð upp á svipaðan hátt og Dagskrá um eldingar en Ragnheiður Harpa segist hafa heillast af einfaldleika formsins og viljað þróa það lengra og "fara lengra út í myrkrið". Þaðan er titill sýningarinnar sprottinn. "Hann hefur ýmsar tengingar," segir Ragnheiður Harpa, "getur vísað til hyldýpis sjávarins eða hyldýpis sálarinnar, þar sem enginn veit hvað kann að leynast. Við spilum dálítið vísvitandi inn á þetta og þess vegna er sýningin síbreytileg, lokaatriðið er til dæmis aldrei eins því hver áhorfandi upplifir í raun sína eigin sýningu." Rýmið leikur líka hlutverk og segir Ragnheiður ólíkt að leika í tiltölulega stórum samkomulag eins og í Finnlandi, þar sem margir áhorfendur komast fyrir, og litlu rými á borð við Petersen svítuna. "Hún er eiginlega fullkomin staður fyrir þetta verk, því það skapast svo mikil nánd." Hyldýpi verður sýnt fjórum sinnum í Gamla bíó, á föstudag, sunnudag, mánudag og þriðjudag, og verður sýnt á Akureyri í janúar."
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira