Tónlist

Lýtur sömu lögmálum

Baldur Ragnarsson hefur haft í nógu að snúast á þessu ári.
Baldur Ragnarsson hefur haft í nógu að snúast á þessu ári. fréttablaðið/valli
Baldur Ragnarsson kemur að gerð fjögurra platna á þessu ári. Hann vílar ekki fyrir sér að tækla jafnt barnatónlist sem bárujárnsrokk og ýmislegt fleira.

Þetta hittist einhvern veginn þannig á að það var nóg til af efni á ansi mörgum vígstöðvum og það bara small allt saman, segir Baldur Ragnarsson.

Hann kemur að gerð fjögurra platna á þessu ári. Þrjár þeirra eru þegar komnar út, eða með Dætrasonum, Innvortis og leikhópnum Lottu sem gaf út Stígvélaða köttinn. Sú fjórða kemur út 26. október með þungarokkurunum í Skálmöld.

Baldur útilokar ekki að senda meira efni frá sér á árinu, hugsanlega sólóplötu. Það er aldrei að vita nema maður hendi í eina síðla árs. Maður getur ekkert stoppað þegar maður er kominn á bragðið. Maður á tugi af lögum og þarf að fara að hreinsa þetta út.

Baldur er einnig tónlistarstjóri Dýranna í Hálsaskógi ásamt Gunnari Ben, félaga sínum úr Skálmöld. Leikritið verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu kl. 14 næsta laugardag. Önnur sýning verður kl. 17 sama dag en um kvöldið taka þeir þátt í tónlistarhátíðinni Rokkjötnar í Kaplakrika með Skálmöld.

Þetta verður drjúgur dagur. Maður kemur fram fyrir alla þjóðfélagshópa á einum degi. Aðspurður býst Baldur ekki við að eiga í vandræðum með að koma sér í rokkgírinn eftir barnasýninguna. Maður þarf alltaf að vera með fulla orku í því sem maður gerir, það þarf bara að beisla hana á annan máta.

Hvort sem það heitir barnaleikrit eða þungarokk, þá skiptir það engu máli. Það lýtur allt sömu lögmálum.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×