Kærkomið tækifæri fyrir tónlistarmenn 30. ágúst 2012 00:01 Mikael süssmann Fiðluleikarinn norski kemur fram á tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld.
Síðsumartónleikar í Þjóðmenningarhúsinu er yfirskrift tónleikaraðar sem hafin er í Þjóðmenningarhúsinu og stendur til 4. september næstkomandi auk tónleika 23. september. Á tónleikunum koma fram evrópskir listamenn sem eiga það sameiginlegt að vera skipuleggjendur tónleika og forsvarsmenn tónlistarhátíða í sínum heimalöndum. „Tónleikaröðin er kærkomið tækifæri fyrir íslenska tónlistarmenn að hitta kollega sína erlenda sem hafa skipulagt tónlistarhátíðir og mynda tengsl og sambönd sem geta verið ómetanleg fyrir ferilinn," segir Sigurður Bragason, söngvari og einn listrænna stjórnenda tónleikaraðarinnar. „Ég hef sjálfur komið fram á fjölda listahátíða og fór að velta fyrir mér hvernig ég gæti nýtt þau sambönd sem ég er kominn með, þannig kom þessi tónleikaröð til." Tónlistarmennirnir eru allir í fremstu röð að sögn Sigurðar. Á tónleikum kvöldsins, sem hefjast klukkan átta, stíga á svið Norðmennirnir Michael Süssmann fiðluleikari og Signe Bakke píanóleikari. Þá taka einleikstónleikar á píanó við: Peter Bortfeldt frá Þýskalandi leikur næsta sunnudag klukkan átta, Sebastiano Brusco frá Ítalíu kemur fram þriðjudaginn 4. september á sama tíma og loks heldur íslensk-bandaríski píanóleikarinn Kristín Jónína Taylor tónleika sunnudaginn 23. september klukkan átta. Auk Sigurðar eru listrænir stjórnendur tónleikanna Guðrún Birgisdóttir og Guðni Bragason. - sbt
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira