Kvikmynd um ævi Gertrude Bell í bígerð 16. ágúst 2012 10:00 Kvikmynd um ævi Gertrude Bell er í bígerð. Naomi Watts fer með hlutverk rithöfundarins og fornleifafræðingsins Bell. nordicphotos/getty
Leikstjórinn Werner Herzog hyggst leikstýra mynd um ævi Gertrude Bell. Naomi Watts hefur tekið að sér að leika Bell og líklegt er að Robert Pattinson fari með hlutverk T. E. Lawrence í kvikmyndinni. Myndin hefur hlotið vinnutitilinn Queen of the Desert og segir frá ævi breska rithöfundarins, fornleifafræðingsins og njósnarans Gertrude Bell, sem var einnig fyrsta konan til að ljúka námi frá Oxford-háskóla. Bell vann náið með T. E. Lawrence, betur þekktum sem Arabíu-Lawrence, á ferðum sínum um Jórdan og Írak. Herzog er ekki einn um að sýna sögu þessarar merku konu áhuga, því Ridley Scott er einnig að vinna að mynd um ævi hennar. Scott er þó önnum kafinn í öðrum verkefnum um þessar mundir en Herzog hyggst hefja tökur á Queen of the Desert í haust og verður því líklega fyrri til að segja sína sögu.
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira