Í leikhúsmaraþoni í sumarfríinu 11. ágúst 2012 09:00 Leikaraparið Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Einar Aðalsteinsson eru á heimavelli á stærstu leikhúshátíð í heimi, Festival Fringe í Edinborg. „
Þetta er dásamlegt. Við erum í leikhúsum frá morgni til kvölds og þetta er frábær innblástur sem við eigum eftir að lifa á í vetur,“ segir leikkonan Anna Gunndís Guðmundsdóttir, sem er stödd á leiklistarhátíðinni Festival Fringe í Edinborg ásamt kærasta sínum, leikaranum Einari Aðalsteinssyni. Festival Fringe er ein af stærstu leikhúshátíðum í heimi og því eins og paradís á jörðu fyrir leikaraparið. Sólarströndinni var því skipt út fyrir maraþon-leikhúsferðir í tíu daga sumarfríi í Edinborg. „Við förum á tvær til þrjár sýningar á dag. Það má segja að borgin sé undirlögð,“ segir Anna Gunndís og heldur áfram „Sumar sýningar eru betri en aðrar. Uppáhaldsýningin okkar hingað til er brúðuleikhús en á einni sýningunni gengum við út eftir tíu mínutur.“ Anna Gunndís leikur aðalhlutverkið í nýjustu mynd Reynis Lyngdal, Frost, sem frumsýnd verður 7. september næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn sem leikkonan unga birtist á hvíta tjaldinu en hún kveðst ekki vera orðin stressuð enn. „Ég er meira að spá í hverju ég á að vera í á frumsýningunni, verð að fara að finna mér fínan kjól,“ segir Anna Gunndís hlæjandi en viðurkennir þó að það verði mjög sérstakt að sjá sig á hvíta tjaldinu. „Ég hef fengið að sjá nokkra búta úr myndinni og er mjög spennt fyrir viðtökunum.“- áp
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira