Fræbbblarnir rokka á málverkasýningu 10. ágúst 2012 12:00 Listakonan Guðrún Benedikta Elíasdóttir opnar listasýningu á Kexinu í kvöld. Pönksveitin Fræbbblarnir mun stíga á stokk í tilefni þess.fréttablaðið/anton brink
Pönksveitin Fræbbblarnir munu koma saman og troða upp á opnun málverkasýningar Guðrúnar Benediktu Elíasdóttur á Kexinu í kvöld. Nokkrir meðlimir sveitarinnar eru í matarklúbbi ásamt Guðrúnu sem kallaður er Goutons Voir. „Maðurinn minn var með þeim í menntaskóla og við höfum verið saman í matarklúbb frá áttatíu og eitthvað,“ segir Guðrún Benedikta og bætir við: „Þetta byrjaði reyndar sem víngerðarklúbbur, sem útskýrir nafnið Goutons Voir, en svo hefur þetta þróast út í matarklúbb með árunum.“ Guðrún Benedikta segist ekki vera vön að hafa tónlistaratriði eða aðrar uppákomur á sýningum sínum en að þetta hafi verið sameiginleg hugdetta hennar og meðlima Fræbbblanna. Það var þó ekki einfalt starf að samræma dagskrá Kexins, hljómsveitarmeðlimanna og hennar. „Nei, það tók margar vikur að finna hentuga dagsetningu enda þurfti að samræma dagskrána á Kexinu, heila hljómsveit í sumarfríi og mig.“ Guðrún Benedikta mun sýna átta stór verk í Gym og Tonic-sal Kexins en fjögur verkanna voru áður til sýnis á hinni virtu Cal-sýningu í Lúxemborg, þar sem Guðrún hefur verið búsett síðustu sjö ár. Sýningin opnar klukkan 22 í kvöld og stendur til 16. ágúst. - sm
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira