Ókláruð staka til forsetans Jón Sigurður Eyjólfssoon skrifar 2. júlí 2012 10:15 Það er engu líkara en vitund mín skipti um forrit þegar ég legg land undir fót. Það verður til dæmis á mér mikil umbreyting þegar ég kem heim til Íslands frá Spáni. Um leið og ég labba inn í Leifsstöð falla stökurnar af munni mér og það verður engu líkara en ég finni fyrir Agli Skallagrímssyni berjast um í brjósti mér. Ég einhendi mér svo í hundrað hluti sem ég klára svo aldrei. Aðsama skapi kemur allt spænskt mér spánskt fyrir sjónir eftir þessi umskipti. Svo opnast spænski heimurinn fyrir mér aftur um leið og ég er lentur í Alicante. En þá á Íslendingurinn allt í einu undir högg að sækja. Ég hætti til dæmis að drekka kaffi og á erfitt með að yrkja stökur en gríp fram í fyrir hverjum manni að spænskum sið. Það versta er að ég hafði ekkert spáð í þessum umskiptum þar til ég fékk, nú fyrir helgi, neyðarkall frá Spáni hingað til Íslands. Þá fékk ég þau válegu tíðindi á vefpósti mínum að ég væri fallinn í einu námskeiði í háskólanum í Kordova nema ef ég skilaði verkefni í hvelli sem ég og ætlaði að gera. En þá kom babb í bátinn. Þetta spænska skólaþrugl var ekkert í íslenska forritinu mínu. Heilinn neitaði að skanna spænskar rafskruddur, nafnið á námskeiðinu fannst ekki í minninu og búið var að díkóda kennarann svo mér fannst hann varla geta verið til í alvörunni. Ég gæti best trúað að flestir evrópskir ráðamenn glími við svipað vandamál. Þeir hafa nú setið ófáa fundi saman og fundið lausn vandans á hverjum fundi. En svo fara þeir til síns heimalands þar sem vitundin virkar eftir öðru forriti sem díkódar niðurstöður fundanna og þjappar Merkel og Barosso niður í nokkur kílóbæti. En hvernig er með okkar leiðtoga? Virka þeir eftir einu forriti þegar þeir leika fulltrúa okkar á erlendri grund og svo öðru þegar þeir tala við okkur? Hvað um forsetann til dæmis? Mér finnst að það ætti að gera þá kröfu um að hann virki alltaf eftir sama forritinu. Eða eins og ég segi: Forseti Íslands aldrei skal í útlöndum skipta um forrit og aldrei hirða um útlensku hjal en hlusta þó stundum á ? sjúddirallirei, sjúdirallila. Eins og ég segi, ég á stundum svolítið erfitt með að klára það sem ég byrja á. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson Skoðun
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun