Á fimm þúsund aðdáendur 14. maí 2012 08:00 Myndasagnahöfundurinn er kominn með tæplega fimm þúsund aðdáendur á Facebook. fréttablaðið/vilhelm
Myndasagnahöfundurinn Vignir Þór Þórhallsson, eða Flotti-Comics eins og hann kallar sig, er kominn með fimm þúsund aðdáendur á Facebook-síðu sína. Þessi tvítugi piltur hefur samið myndasögur síðan hann var fimmtán ára. „Þegar ég var í grunnskóla leiddist mér stundum og þá byrjaði ég að teikna myndasögur," segir Vignir Þór, sem setti myndasögurnar inn á síðuna Hugi.is. Þar urðu þær vinsælar en núna einbeitir hann sér að eigin Facebook-síðu en einnig birtir hann kvikmyndatengdar sögur á síðunni Kvikmyndir.is. Sögurnar hans eru bæði á ensku og íslensku, enda vill hann ná til fleira fólks með verkum sínum. „Ég hef verið að birta sögurnar stundum á 9gag.com sem er vinsæl grínsíða. Það hafa nokkrar komist á forsíðuna, sem er æðislegt því það er svo breiður áhorfendahópur þar." Vignir Þór, sem ætlar að gefa út myndasögubók í nánustu framtíð, segir aðspurður að Hugleikur Dagsson sé í miklu uppáhaldi hjá sér. „Ég geri aðeins öðruvísi sögur en mér finnast sögurnar hans voða góðar. Það er mjög svartur húmor í þeim og hann þorir að fara langt yfir strikið." -fb
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira