Grænir eru dalir þínir Bergsteinn Sigurðsson skrifar 9. maí 2012 06:00 Elliðaárdalurinn komst í brennidepil í fyrradag þegar greint var frá því að fulltrúar Vinstri grænna í borginni legðust gegn því að leikfimistöðin Boot Camp – eða Bússubúðir eins og kollegi minn kýs að þýða það – fengi þar æfingaaðstöðu. Telur flokkurinn ekki fara „vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkamsrækt með herbúðasniði, hávaða og yfirbragði sem því fylgir, bílastæðaþröng og mikilli umferð bíla" og vill finna húsum á svæðinu „heppilegra hlutverk í sátt við mannlíf, sögu og náttúrulegt umhverfi". Forsaga málsins er sú að í tíð R-listans – sem Vinstri græn tóku þátt í – gaf borgarstjórn Fornbílaklúbbnum lóð í Elliðaárdal án kvaða til að byggja bílasafn. Þar var byggt sýningarhús og lagður vegur með það beinlínis að markmiði að auka umferð og laða að fleira fólk í dalinn. Þegar bíldellingar hurfu frá áformum sínum um bautastein fyrir bensínháka fyrri tíma var þeim frjálst að selja aðstöðuna hæstbjóðanda, sem leigir leikfimistöðinni húsið. Og slík starfsemi hugnast Vinstri grænum ekki. Ég hefði reyndar haldið að flokkur eins og Vinstri græn fagnaði leikfimistöð í Elliðaárdalnum í stað safns til heiðurs einkabílnum (hvers vægi flokknum er mikið í mun að minnka). Andstaðan er ekki síst forvitnileg í ljósi þess að Bússubúðir eru í sjálfu sér eins Vg-legt fyriræki og hugsast getur: lítið sprotafyrirtæki sem nokkrir vinir stofnuðu og leggur áherslu á tiltölulega sjálfbæra líkamsrækt, það er þrekæfingar þar sem lóðum og tækjabúnaði er haldið í lágmarki svo aðstaðan tekur lítið pláss. Bússubúðir eru í raun andstaðan við líkamsræktarstöðvar á borð við plássfreka orkusvelginn í Laugardalnum, sem kostaði formúu að byggja og innrétta með sjónvarpsvæddum hlaupabrettum, nýtur góðs af nálægðinni við Laugardalslaug – sem er í almannaeigu – og hefur losað sig úr skuldasúpu með kennitöluflakki. Af umræðum meðal Facebook-vina minna að dæma virðist ásteytingarsteinninnn um veru Bússubúða í Elliðaárdal aðallega vera ólík sjónarmið um notkun grænna svæða. Hér takast á þau systkin friðsæld og fjör. Á sumum má helst skilja að grænna svæða sé ekki hægt að njóta nema liggjandi við kyrrlátan árbakka með puntstrá í munni að dást að bláklukkum og fá innblástur að ljóði, meðan aðrir líta á útvistarsvæðin sem kjörlendi til að finna kröftum sínum viðnám. Á þessu hlýtur að mega finna einhvern milliveg. Fyrst við erum á annað borð komin út á tún. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun
Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun