Trúarjátning Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 8. maí 2012 06:00 Um þar síðustu helgi fór ég í skrúðgöngu mikla sem hófst eldsnemma morguns hjá kirkjunni í þorpinu Zújar. Var líkneski af verndardýrlingi þorpsins borið af hraustum trúbræðrum upp á fjall eitt mikið er stendur við bæinn. Þegar komið er upp í hlíð skjóta upp kollinum sauðdrukknir ungbændur með vínbelg á lofti. Reka þeir belginn framan í göngumenn og segja þeim að opna munninn sem heimamenn gera möglunarlaust. Síðan ratar einn og einn víndropi upp í fólkið en mest fer þetta í nef og augu. Þykir þetta hin mesta skemmtan. Svo óheppilega vildi til að ég tók þessari hefð illa þegar sauðdrukkinn bóndi vildi að ég léti þennan þjóðlega ófögnuð yfir mig ganga. Kallaði ég þá yfir mig slíkar óvinsældir að ungbændur vopnaðir vínbelgjum sóttu að mér eins og mý á mykjuskán. Aðrir vildu sýna meiri háttsemi og buðu mér pylsubita sem mér þótti ekki fýsilegur því menn bera þessa pylsu hangandi í buxnastrengnum og því minnir hún óheppilega mikið á áföstu pylsuna sem skaparinn hengdi á okkur. Ég þótti því býsna þver og sérlundaður. Þegar komið var upp á topp fékk ég frið fyrir ólátabelgjum og vínbelgjum þeirra. Þeir höfðu nefnilega öðrum hnöppum að hneppa. Þarna uppi er nefnilega skemma nokkur og þangað inn fara ungbændur og villtasta göngufólkið með trommur sínar og síðan slær hver með sínum takti svo úr verður hinn ljótasti hávaði sem fólkinu tekst einhvern veginn að dansa við. Þar er víninu síðan sprautað af miklu kappi. Mér var þá farið að líða eins og ölvuðum mannfræðingi í Amazonskógi. Veðurguðirnir voru dyntóttir þennan dag. Ég gleymdi hattinum mínum sem var ólán mikið því hin rósfingraða morgungyðja fór ekki mjúkum höndum um skallann. Síðan kom rigning mikil sem vætti fólk og snöggkældi. Daginn eftir er ég á leið heim til mín í bæinn Priego de Córdoba. Svolítið þunnur, þjáður af sólsting og með hálsbólgu. Þegar ég ætla að aka inn götuna mína stöðvar mig lögregluþjónn og segir hana vera lokaða því nú fari kaþólskir trúbræður með líkneski af Maríu mey um götur bæjarins. Ég verði því að leggja bílnum í útjaðrinum. Ég sló gremjulega í stýrið en reyndi svo að hugsa eitthvað jákvætt. Sálfræðingar segja það gott ráð þegar svona stendur á. Jú, og jákvæða hugsunin kom: Mikið rosalega hefur hann Marteinn Lúther verið skýr karl. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun