Viðskipti erlent

Líf þitt á Facebook verður að kvikmynd

Timeline Movie Maker safnar saman upplýsingum og setur upp í myndband.
Timeline Movie Maker safnar saman upplýsingum og setur upp í myndband.
Hvort sem þér líkar það betur eða verr, þá mun Facebook skikka þig til að breyta síðunni þinni í svokallaða tímalínusíðu á næstu dögum eða vikum. Lítið hefur verið kvartað undan tímalínunni sem virðist nokkuð kærkomin viðbót við þetta stærsta samskiptanet allra tíma.

Nú hafa hugvitssamir Facebook-notendur tekið sig til og búið til smáforritið, eða „appið", Timeline Movie Make, sem gerir myndband úr tímalínunni þinni. Fyrir þá sem þekkja ekki til þá er hægt að setja inn atburði í lífi fólks allt frá fæðingu til dagsins í dag í tímalínuna. Hvort sem það eru myndir, myndbönd eða atburðir. Timeline Movie Maker safnar saman þessum upplýsingum, setur upp í myndband og spilar væmna tónlist undir sem nær nánast örugglega að framkalla tár í augum notendanna.

Hægt er að finna forritið á slóðinni timelinemoviemaker.com. Notendur geta því hafist handa við að skrásetja líf sitt og breyta því í væmna kvikmynd á einfaldan hátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×