Salon Islandus bregður á leik 12. janúar 2012 10:00 Salon Islandus spilar í sínu fínasta pússi í Salnum annað kvöld ásamt Þóru Einarsdóttur söngkonu. „
Við höfum staðið fyrir nýárstónleikum síðan árið 2004, leikum Vínartónlist, valsa og polka, sprellum og höfum það gaman. Í ár verður Þóra Einarsdóttir söngkona með okkur og tekur nokkur lög,“ segir Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og meðlimur í kammerhópnum Salon Islandus sem heldur tónleika í Salnum í Kópavogi annað kvöld klukkan átta. Á laugardag leggja þau svo land undir fót og halda Vínartónleika í Miðgarði í Skagafirði. „Þá verður karlakórinn Heimir með okkur og söngvararnir Óskar Pétursson og Helga Rós Indriðadóttir. Að loknum tónleikunum leikur sveitin fyrir dansi,“ segir Anna sem segir það óvenjulegt en skemmtilegt fyrir klassískt menntaða hljóðfæraleikara að leika fyrir dansi. Auk Önnu Guðnýjar skipa Salon Islandus þau Sigurður Ingvi Snorrason, klarinettuleikari sem er hljómsveitarstjóri, Sigrún Eðvaldsdóttir og Pálína Árnadóttir fiðluleikarar, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Hávarður Tryggvason sem leikur á kontrabassa, Martial Nardeau flautuleikari og Pétur Grétarsson slagverksleikari.
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira