Viðskipti erlent

Bloomberg fær ekki gögn frá ECB um blekkingar Grikkja

Evrópski seðlabankinn (ECB) þarf ekki að gera opinber skjöl sem sýna hvernig stjórnvöldum í Grikklandi tókst að blekkja Evrópusambandið um stöðu ríkisfjármála sinna fyrir hrunið 2008.

Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins í máli Bloomberg fréttaveitunnar gegn ECB en Bloomberg lagði fram beiðni til bankans árið 2010 um að fá aðgang að þessum skjölum. Seðlabankinn neitaði strax að verða við beiðni Bloomberg sem kærði þá ákvörðun til dómstólsins.

Í umfjöllun um málið í börsen segir að grískum stjórnvöldum hafi tekist í áratug að blekkja aðrar Evrópuþjóðir um bágborna stöðu ríkisfjármála sinna með því að notast við afleiður sem voru tryggðar með ríkiseignum.

Þegar ECB skrúfaði fyrir fjármagnsstrauminn til Grikklands árið 2008 hófst gríska kreppan um leið og endaði með því að landið er nú algerlega háð neyðaraðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu.

Þessar blekkingar Grikkja höfðu einnig þær afleiðingar að verulega var hert á reglum um upplýsingagjöf um ríkisfjármál til evrópsku hagstofunnar Eurostat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×