Viðskipti erlent

Carlsberg þénar milljarða

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það gengur vel á bjórframleiðandanum þekkta.
Það gengur vel á bjórframleiðandanum þekkta. Mynd/ Getty.
Hagnaður danska bjórframleiðandans Carlsberg nam um 3 milljörðum danskra króna, eða um 60 milljörðum íslenskra króna, á þriðja fjórðungi ársins. Þótt niðurstaðan hljóti að vera vel ásættanleg er hún samt örlítið lakari en hún var á sama tíma í fyrra. Þá nam hagnaðurinn næstum áttatíu milljörðum íslenskra króna. Tekjur fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi núna námu rétt tæpum 19 milljörðum danskra króna eða um 380 milljörðum íslenskra króna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×