Heimildamyndahátíð hafin í Bíó Paradís 9. nóvember 2012 17:30 „
Wonder Women: The Untold Story of American Superheroines" er ein þeirra mynda sem sýnd er á heimildamyndahátíðinni Bíó:DOX sem hefst í dag. Myndin segir frá þróun og arfleifð hinnar stórkostlegu ofurhetju Wonder Woman, allt frá tilurð teiknimyndahetjunnar um 1940 til nútíma vinsælda hennar. Í myndinni er kannað hvernig birtingarmyndir kraftmikilla kvenna endurspegla hræðslu samfélagsins við aukin réttindi þeirra. Wonder Women! kafar undir yfirborðið með Lyndu Carter, Lindsay Wagner, gamanhöfundum og listamönnum og einnig með raunverulegum kvenofurhetjum eins og Gloriu Steinem, Kathleen Hanna og fleirum, sem bjóða upp á upplýsandi og skemmtilega andstæðu við karllægan heim ofurhetja.Tónlistarmyndin „Searching for Sugar man" er opnunarmynd hátíðarinnar og hefst sýning myndarinnar kl. 20 í kvöld. Strax að lokinni sýningu myndarinnar verður opnunarpartý hátíðarinnar í Bíó Paradís þar sem plötusnúður leikur lög Rodriguez, aðalpersónu myndarinnar, í bland við önnur lög. List er þema hátíðarinnar. Aðrar myndir sem sýndar verða eru „Jiro Dreams of Sushi" þar sem einblínt er á matargerðarlist og „Woody Allen: A Documentary" þar sem áherslan er á kvikmyndagerðarlist. BÍÓ:DOX er nýr heimildamyndaklúbbur Bíó Paradísar og mun standa fyrir mánaðarlegum sýningum á sérvöldum heimildamyndum í Bíó Paradís í vetur.Fimm heimildamyndir verða sýndar á hátíðinni sem stendur frá og með deginum í dag yfir til 15. nóvember.Heimasíða Bíó Paradísar.Searching for Sugar man.
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira