Viðskipti erlent

Markaðir á Wall Street lokaðir annan daginn í röð

Fjármálamarkaðir á Wall Street verða áfram lokaðir í dag, annan daginn í röð vegna ofurstormsins Sandy. Þetta á við um öll viðskipti líka þau rafrænu.

Í blaðinu Wall Street Journal er haft eftir einum af verðbréfasölunum á þessum markaði að hann hafi aldrei upplifað nokkuð jafnalvarlegt á starfsævi sinni.

Síðast þegar veður truflaði markaðinn á Wall Street var árið 1996 þegar viðskiptin lágu niðri hluta af degi vegna blindbyls sem herjaði þá á New York búa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×