Viðskipti erlent

Grænt ljós á eina stærstu bankasölu í sögu Norðurlanda

Jafnaðarmannaflokkurinn í Svíþjóð ætlar að gefa grænt ljós á eina stærstu bankasölu í sögu Norðurlandanna.

Það hefur löngum verið vitað að sænska stjórnin hefur mikinn áhuga á að selja 13,5% hlut sinn í Nordea bankanum sem er stærsti banki Norðurlandanna. Hinsvegar hafa þau áform ætíð strandað á andstöðu jafnaðarmanna við söluna en jafnaðarmenn eru stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn í Svíþjóð.

Í frétt um málið á börsen segir að nú hafi jafnaðarmönnum snúist hugur og að þeir vilji selja þennan hlut ríkisins ef rétt verð fæst fyrir hann.

Um er að ræða stjarnfræðilegar tölur á norrænan mælikvarða. Þannig eru eignir Nordea í dag yfir 700 milljarðar evra og eiginfjárhlutfallið er rétt tæp 12%. Því gæti þessi eignarhlutur skapað sænska ríkinu allt að 90 milljarða evra í tekjur eða sem svarar til yfir 14.500 milljarða króna.

Vitað er að finnski tryggingarrisinn Sampo, sem Exista átti eitt sinn stóran hlut í, hefur áhuga á kaupunum en Sampo á fyrir ríflega 20% hlut í Nordea.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×