Viðskipti erlent

Danske Bank segir upp 300 starfsmönnum

Danske Bank hefur sagt upp 300 starfsmönnum sínum og fengu þeir uppsagnarbréf sín í morgun.

Í fréttum í dönskum fjölmiðlum segir að þessar uppsagnir séu liður í þeim áformum bankans að skera niður starfsmannafjölda sinn um 2.000 manns fyrir árslok á næsta ári.

Flestir þeirra sem sagt var upp unnu sem gjaldkerar í útibúum bankans í Danmörku. Ástæðan fyrir uppsögnum þeirra er sú að sílfellt fleiri Danir nota nú netið til að stunda bankaviðskipti sín í stað þess að gera það upp á gamla mátann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×