Viðskipti erlent

Nubo metinn á 125 milljarða - Ríkasti Kínverjinn í hart við Obama

Magnús Halldórsson skrifar
Huang Nubo.
Huang Nubo.
Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo, sem sýnt hefur áhuga á því að byggja upp ferðaþjónustu á Grímsstöðum á fjöllum, er í 129. sæti á lista Forbes yfir 400 ríkustu Kínverjana. Hrein eign hans er metin á ríflega einn milljarð dala, eða sem nemur 125 milljörðum króna.

Eignir Nubos er bundnar í fjárfestingafélaginu Beijing Zhongkun Investment Group, að því er segir í umfjöllun Forbes.

Ríkasti Kínverjinn er sagður vera Liang Wengen, einn af stjórnendum orkurisans Sany, en

hann var meðal þeirra sem ætluðu að byggja upp vindmyllugarð í Oregon ríki í Bandaríkjunum í gegnum fyrirtækið Ralls Corp. Hrein eign hans er metinn á 9,3 milljarða dala, eða sem nemur ríflega þúsund milljörðum króna.

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, kom í veg fyrir fjárfestinguna í Oregon í síðustu viku, og bar því við að uppbygging Kínverjana gæti ógnað þjóðaröryggi landsins.

Breska ríkisútvarpið BBC greindi frá því í morgun að Ralls Corp hefði höfðað mál gegn Obama vegna þessa, en þetta var í fyrsta skipti í 22 ár sem forseti Bandaríkjanna kemur í veg fyrir erlenda fjárfestingu með fyrrnefndum hætti, að því er segir í frétt BBC, en vitnað var til hennar í frétt á Vísi í morgun.

Sjá má lista Forbes yfir ríkustu Kínverjana hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×