Viðskipti erlent

Arfleifð Steve Jobs - Apple stærst allra

Apple er nú stærsta fyrirtæki allra tíma.
Apple er nú stærsta fyrirtæki allra tíma. mynd/AFP
Rúmt ár er liðið frá því að Steve Jobs, framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Apple, hélt á vit forfeðra sinna. Margir óttuðust að fráfall hans myndi boða endalok þess mikla uppgangstíma sem tæknirisinn hafði gengið í gegnum síðustu ár.

Þeim skjátlaðist. Frá því að Jobs féll frá, 5. október 2011, hefur Apple fest sig í sessi sem stærsta fyrirtæki veraldar enda hefur virði hlutabréfa félagsins rokið upp á síðustu mánuðum. Apple er nú stærsta fyrirtæki allra tíma.

Þegar markaðir lokuðu í gær hafði virði hlutabréfa Apple hækkað um tvo þriðju frá því á sama tíma í fyrra.

Hér má sjá þróun hlutabréfa í Apple, Google, Samsung og Microsoft á síðasta ári.mynd/Datastream
Tim Cook, arftaki Steve Jobs, hefur samt sem áður gert ýmsar breytingar á rekstri Apple. Einna helst má nefna ákvörðun hans og stjórnarmanna Apple að greiða hluthöfum ársfjórðungslegan arð. Þetta gerðist síðast í árið 1995. Ráðstöfunarfé Apple nemur nú um 100 milljörðum dollara eða það sem nemur um 1.200 þúsund milljörðum íslenskra króna.

Helstu keppinautar Apple, Google og Samsung, hafa að sama skapi háð hetjulega baráttu um yfirráð á spjaldtölvu- og snjallsímamarkaðinum.

Á einu ári hækkaði gengi Google um 50 prósent. Samsung var á svipuðu reiki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×