Viðskipti erlent

Deilu Actavis og Sanofi vísað til Evrópudómstólsins

Dómari í London hefur vísað deilu Actavis og franska lyfjaframleiðandans Sanofi til Evrópudómstólsins. Deilan snýst um að Actavis vill fá leyfi til að framleiða samheitalyfjaútgáfu af lyfinu Aprovel en einkaleyfi Sanofi á því er runnið út.

Fjallað er um málið í frétt á Bloomberg fréttaveitunni. Þar segir að Aprovel sem einnig er selt undir heitinu Avapro hafi skapað sölutekjur upp á 1,3 milljarða evra eða um 260 milljarða króna á síðasta ári fyrir Sanofi. Lyfið er notað gegn sykursýki og of háum blóðþrýstingi.

Fram kemur að Sanofi telji sig enn eiga réttinn á framleiðslu lyfsins þrátt fyrir að einkaleyfið sé runnið út vegna sérstaks hliðarsamnings um slíkt. Dómarinn í London þótti málið of óljóst og því vísaði hann því til Evrópudómstólsins.

Frank Staud talsmaður Actavis segir í tölvupósti til Bloomberg að Actavis sé nokkuð visst um að vinna þetta mál fyrir Evrópudómstólnum.

Marisol Peron talskona Sanofi segir að hún eigi von á að dómstóllinn muni úrskurða í þessu máli fljótlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×