Golf

Poulter hélt vonum Evrópubúa á lífi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Bandaríkin er með fjóra vinninga í forskot á það evrópska fyrir lokakeppnisdaginn í Ryder-bikarkeppninni í golfi. Hvort lið vann tvo vinninga í fjórleik í kvöld.

Lengi vel leit út fyrir að bandaríska liðið væri einfaldlega að stinga af en Evrópuliðið sótti tvo vinninga í síðustu tveimur viðureigununum eftir að staðan var orðin 10-4, Bandaríkjunum í vil. Fyrr í dag var keppt í fjórmenningi þar sem Bandaríkin hafði betur í þremur viðureignum en Evrópa í einni.

Ian Poulter sá til þess að Evrópuliðið ætti enn séns á lokakeppnisdeginum á morgun en hann gerði sér lítið fyrir og setti niður fimm fugla á síðustu fimm holunum í síðustu viðureigninni í fjórleiknum.

Poulter var í liði með Rory McIlroy og höfðu þeir betur gegn þeim Jason Dufner og Zach Johnson á lokaholunni, rétt eins og þeir Sergio Garcia og Luke Donald gegn Tiger Woods og Steve Stricker rétt á undan.

Þetta var þriðja tap Woods í jafn mörgum viðureignum í þessari Ryder-keppni en þrátt fyrir sinn glæsilega feril hefur Woods oft átt erfitt uppdráttar í Ryder-bikarnum. Hefur hann tapað fleiri viðureignum en hann hefur unnið frá upphafi.

Bandaríkin stendur mun betur að vígi fyrir viðureignir morgundagsins og verða að teljast mun sigurstranglegri, enda á heimavelli. Keppt verður í tvímenningi á morgun og verða viðureignirnar alls tólf. Bandaríkin þarf 4,5 vinninga til að tryggja sér sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×