Viðskipti erlent

Lántökukostnaður Ítalíu lækkar um nær helming

Lántökukostnaður Ítalíu hefur lækkað um nær helming frá því í júlí s.l. Útboð var á ítölskum ríkisskuldabréfum til þriggja ára í morgun fyrir fjóra milljarða evra.

Vextir á þessum bréfum voru 2,75% en í sambærilegu útboði í júlí voru vextirnir 4,65%.

Auk þessa voru seld ríkisskuldabréf til tíu ára fyrir 1,5 milljarða evra og voru vextirnir á þeim 5,32%. Vextir á tíu ára bréfunum voru hinsvegar 6,19% í júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×