Viðskipti erlent

Danir tapa stórfé á örum frumsýningum kvikmynda

Peter Aalbæk Jensen forstjóri Zentropa.
Peter Aalbæk Jensen forstjóri Zentropa.
Danskir kvikmyndagerðarmenn tapa stórfé á því hve ört danskar kvikmyndir hafa verið frumsýndar í haust.

Það er Jyllands Posten sem fjallar um málið en þar kemur fram að á innan við sex vikum í september og október munu níu innlendar leiknar kvikmyndir í fullri lengd verða frumsýndar í Danmörku. Þetta leiðir til þess að verulega dregur úr aðsókn á þær hverja fyrir sig því takmarkað er hvað almenningur hefur mikinn tíma til að horfa á allar þessar myndir.

Jyllands Posten segir að með öllum þessum frumsýningum sé verið að eyða fé skattborgara í vitleysu en þessar myndir voru styrktar af hinu opinbera með samtals 56 milljónum danskra kr. eða vel yfir milljarði kr.

Rætt er við Klaus Hansen formann félags kvikmyndaframleiðenda í Danmörku og Peter Aalbæk Jensen forstjóra Zentropa sem eru sammála um að þessi fjöldi frumsýninga á jafnstuttum tíma sé fáránlegur og til þess eins að kvikmyndagerðarmenn tapi fé að óþörfu.

Danska kvikmyndastofnunin hvetur framleiðendur til að dreifa frumsýningum á myndum sínum betur yfir árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×