Viðskipti erlent

Allar bestu vefsíðurnar fyrir konur

Magnús Halldórsson skrifar
Oprah Winfrey er almennt áltinn ein áhrifamesta kona Bandaríkjanna, og heimsins alls. Hún er á lista Forbes yfir ríkustu konur heimsins, og áhrifamesta fólk heims.
Oprah Winfrey er almennt áltinn ein áhrifamesta kona Bandaríkjanna, og heimsins alls. Hún er á lista Forbes yfir ríkustu konur heimsins, og áhrifamesta fólk heims.
Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes tók á dögunum saman lista yfir 100 bestu vefsíðurnar á netinu fyrir konur. Á listanum eru margvíslegar vefsíður, um hin ýmsu mál, sem allar eiga það sameiginlegt að fjalla sérstaklega um áhugamál kvenna. Margar af vefsíðunum fjalla einnig um tækifæri fyrir konur í viðskiptalífinu.

Á listanum eru meðal annars eftirtaldar vefsíður:

Babble.com - vefsíða fyrir foreldra, þar sem fjallað er um tísku, mat og foreldrahlutverkið í víðasta skilningi.

Birdsontheblog.com - Vefsíða um viðskiptatækifæri kvenna.

Blogher.com - Vefsíða þar sem konur skrifa um konur, öll möguleg áhugamál kvenna og karla raunar líka.

Feministe.us/blog - Vefsíða sem fjallar um femínisma, með húmor og dýpt að leiðarljósi.

Getraised.com - Vefsíða sem búin var til með það að leiðarljósi að hjálpa konum við að fá hærri laun.

Helloladies.com - Fjallar um konur og ritgerðir um málefni kvenna.

HuffingtonPost Women - Hér eru málefni kvenna til umræðu, og allt fær að flakka.

Healthywomen - Um konur og heilsu.

Popsugar.com - Hér er fjallað um allt milli himins og jarðar sem snýr að konum, og fræga fólkinu.

Sousstyle.com - Vefsíða um stíl, tísku og hönnun.

Sjá má umfjöllun Forbes um bestu vefsíðurnar fyrir konur, hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×