Viðey er viðkomustaður margra 4. september 2012 17:30 Uppskeru sumarsins verður fagnað í Viðey næsta laugardag, 8. september.
Töðugjöld verða í Viðey næsta laugardag, 8. september. Þá verður uppskeru sumarsins fagnað að hætti Viðeyinga með þakkargjörð, tilsögn í prúðmannlegri framkomu, fróðleik um kartöflur, haustréttum í pottum og ljósmyndasýningu. Mikil ánægja hefur verið á meðal gesta sem sótt hafa eyjuna heim í sumar, nánast allir segjast myndu mæla með ferð þangað að því er fram kemur í könnunum sem lagðar voru fyrir úrtak gesta í júní og júlí. Vel yfir fjórtán þúsund gestir komu í Viðey fyrstu sjö mánuði ársins og voru Íslendingar fjölmennastir eða tæplega fjörutíu af hundraði. Mikið hefur verið lagt upp úr að auka þjónustu við gesti í Viðey með vegvísum með fróðleik um eyjuna. Tekið er á móti skólabörnum þar á vorin, flestar helgar sumarsins er eitthvað að gerast og veitingahúsið í Viðeyjarstofu hefur verið opið alla daga vikunnar. Skemmti- og fróðleiksgöngur á þriðjudagskvöldum hafa verið vinsælar og fullt út úr dyrum á tónleikum. Stefnt er að því að halda tónleika einn fimmtudag í mánuði fram eftir vetri. Viðeyjarferjan siglir alla daga vikunnar út í eyju allan september, eftir það mun hún sigla um helgar.
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira