Mikilvægt að styrkja barnabókamenningu 6. september 2012 17:00 Segir barnabókamenningu vera að sækja í sig veðrið í Grænlandi og Færeyjum og því þurfa að fylgja eftir.
Tilnefndar eru þrjár bækur, ein frá Færeyjum, ein frá Grænlandi og ein frá Íslandi. Dagný Kristjánsdóttir prófessor er í dómnefnd. Hún segir markmið verðlaunanna að styrkja barna- og unglingamenningu í þessum löndum sem eigi margt sameiginlegt en þekki hvert annað svo lítið. Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins verða veitt í sjötta sinn á morgun við hátíðlega athöfn. Þau eru að verðmæti 1,2 milljónir.Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins verða veitt í sjötta sinn á morgun við hátíðlega athöfn. Þau eru að verðmæti 1,2 milljónir. Tilnefndar eru þrjár bækur, ein frá Færeyjum, ein frá Grænlandi og ein frá Íslandi. Dagný Kristjánsdóttir prófessor er í dómnefnd. Hún segir markmið verðlaunanna að styrkja barna- og unglingamenningu í þessum löndum sem eigi margt sameiginlegt en þekki hvert annað svo lítið. Hingað til hafa Íslendingar hlotið verðlaunin í öll skiptin nema eitt og Dagný segir ástæðuna þá að á Íslandi komi út 84 frumsamdar, íslenskar barnabækur á ári en bara fimm í Grænlandi, þar af bara tvær frumsamdar. Valið fari hins vegar ekki eftir fjölda heldur gæðum. "Hin vestnorrænu löndin hafa ekki sömu barnabókahefð og við, þess vegna er svo mikilvægt að styrkja hana og í ár eru ofboðslega góðar bækur bæði frá Grænlendingum og Færeyingum, þannig að þeir eru að sækja í sig veðrið," upplýsir hún. Dagný segir verðlaunabækurnar jafnan þýddar á hin vestnorrænu málin. Hins vegar hafi þær hingað til ekki verið gefnar út nema í upprunalandinu. "Til að ná markmiðum verðlaunanna þyrfti bókin sem vinnur, og helst allar sem tilnefndar eru, að koma út í öllum þremur löndunum," segir hún. "Við vonumst til að Vestnorræna ráðið fylgi verðlaununum eftir með því að styrkja útgáfu á bókunum." -gun
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira