Viðskipti erlent

BBA ætlar að selja Stansted flugvöll

Magnús Halldórsson skrifar
Frá Stansted flugvelli.
Frá Stansted flugvelli.
Rekstrarfélagið BBA, sem rekur flugvelli víðs vegar um Bretland, hefur ákveðið að selja Stansted flugvöll í útjaðri London. Félagið hefur átt í deilum við samkeppnisyfirvöld í Bretlandi frá árinu 2009, en þau fóru fram á að BBA seldi Stansted til þess að örva samkeppni á flugvallareksturssviði, en félagið hefur rekið sjö flugvelli í Bretlandi þar sem um 60 prósent af flugfarþegum fer um að hverju ári. Á meðal þeirra eru Heathrow flugvöllur og Gatwick, auk Stansted flugvallar.

Íslendingar þekkja Stansted en þangað hafa íslensk flugfélög flogið árum saman, þá helst lággjaldaflugfélög.

Stephen McNamara, framkvæmdastjóri Ryanair, fagnar ákvörðun BBA í samtali við breska ríkisútvarpið BBC í dag, en Ryanair hefur lengi gagnrýnt BBA fyrir há gjöld á Stansted flugvelli.

Sjá má umfjöllun BBC hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×