Viðskipti erlent

Fjármálaráðuneytið vísar ásökunum Víglundar á bug

Fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið hafnar því að hafa ekki brugðist við málaleitan Víglundar Þorsteinssonar, fyrrverandi forstjóra BM Vallár. Á blaðamannafundi í dag sagði Víglundur að ráðuneytið hefði neitað að veita upplýsingar um endurmat á lánasöfnum sem færð voru úr Kaupþing hf. yfir í Ariobanka.

„Fjármálaráðuneytið hefur afhent þau gögn sem það hefur undir höndum og því hefur verið heimilt að afhenda," segir á heimasíðu ráðuneytisins.

Á blaðamannafundinum í dag sagði Víglundur að niðurstaða Úrskurðarnefndar um upplýsingarmál að synja sér um aðgang að samingum um endurmat á lánasöfnum staðfesti það að listi hafi verið gerður í Arionbanka yfir skuldara sem vinna átti á.

Í tilkynningu Fjármálaráðuneytisins er ásökunum Víglundar vísað á bug.

„Dylgjum um að ráðuneytið, ríkisstjórn eða einstakir ráðherrar hafi haft afskipti af einstökum lánum eða lánveitendum er alfarið vísað á bug," segir á heimasíðu Fjármálaráðuneytisins.

Hægt er að nálgast tilkynningu ráðuneytisins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×