Viðskipti erlent

Tekjur Best Buy falla saman - keppinautar á netinu að vaxa

Magnús Halldórsson skrifar
Best Buy er ein af stærstu raftækjaverslanakeðjum Bandaríkjanna.
Best Buy er ein af stærstu raftækjaverslanakeðjum Bandaríkjanna.
Gengi hlutabréfa í raftækjaverslunarrisanum Best Buy féll um 9 prósent í dag eftir að uppgjör félagsins fyrir annan fjórðung þessa árs var birt, en það sýndi tekjuminnkun frá fyrra ári um 12 milljónir dala, eða sem nemur um 1,4 milljörðum króna.

Tekjur Best Buy hafa minnkað frá því árið á undan á átta af síðustu níu ársfjórðungum, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Best Buy á í harðri baráttu við fyrirtæki sem selja raftæki á netinu, en slík sala hefur vaxið hratt á síðustum árum, og færist enn í vöxt. Sérstaklega er það sala á vefnum Amazon.com sem hefur höggvið í tekjugrunn Best Buy, að því er segir í frétt BBC.

Sjá má frétt BBC um málið hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×