Viðskipti erlent

Royal Bank of Scotland líka til rannsóknar

Bandarísk yfirvöld rannsaka nú hvort Royal Bank of Scotland hafi brotið viðskiptabann gegn Íran.

Það eru einkum Seðlabanki Bandaríkjanna og varnarmálaráðuneytið sem rannsaka málið. Talsmenn Royal Bank og Scotland hafa ekki viljað tjá sig um ásakanirnar eða rannsóknina. Hins vegar kom fram í hálfsárs uppgjöri bankans, fyrr í mánuðinum, að verið væri að yfirfara reglur og starfsaðferðir við greiðslur sem inntar væru af hendi í bandarískum dollurum utan Bandaríkjanna.

Þar kom einnig fram að bankinn ætti í viðræðum við bresk og bandarísk stjórnvöld um það hvernig lög og reglur ríkjanna tveggja væru virt og var þar sérstaklega vikið að efnahagsþvingunum Bandaríkjamanna gegn öðrum ríkjum.

Einungis fáeinir dagar eru liðnir frá því að breski bankinn Standard Chardjerd samþykkti að greiða 340 milljóna dala, eða ríflega 40 milljarða króna, sekt eftir að bankinn hafði verið sakaður um peningaþvætti í viðskiptum við írönsk stjórnvöld.

Sérfræðingar töldu þá að jafnvel þótt sektin væri gríðarlega há, væri hún smámunir miðað við það áfall sem bankinn hefði orðið fyrir ef hann hefði tapað málaferlum fyrir dómstólum vegna þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×