Viðskipti erlent

Man. Utd. formlega orðið bandarískt almenningshlutafélag

Magnús Halldórsson skrifar
Glazer feðgar, fyrir miðju, sjást hér fyrr í dag þegar bréf félagsins voru tekin til viðskipta í New York. Þeir eru einnig eigendur bandaríska félagsins Tampa Bay Buccaneers.
Glazer feðgar, fyrir miðju, sjást hér fyrr í dag þegar bréf félagsins voru tekin til viðskipta í New York. Þeir eru einnig eigendur bandaríska félagsins Tampa Bay Buccaneers.
Forsvarsmenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United (Man. Utd.) hringdu bjöllunni í kauphöll Nasdaq á Wall Street í dag þegar bréf félagsins voru formlega tekin til viðskipta. Fyrstu viðskipti með bréfin fóru fram á 14,05 dölum á hlut en skráningargengið var 14 dalir, nokkru lægra en vonast hafi verið til, en verðbilið í skráningarlýsingu félagsins var 16 til 20 dalir.

Bréf sem jafngilda tíu prósent af heildarhlutafé félagsins hafa þegar verið seld til fjárfesta, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC, en það þýðir að félagið hefur þegar aflað um 233 milljónum dala, eða sem nemur tæplega 28 milljörðum króna, en Glazer fjölskyldan, sem er aðaleigandi Man. Utd., stefnir á að safna 333 milljónum dala með skráningunni, að því er segir í frétt BBC.

Félagið er skráð á mark undir nafninu MANU í kauphöllina í New York.

Sjá má frétt BBC um skráninguna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×