Viðskipti erlent

Batman féll úr fyrsta sæti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Nýjasta Batman myndin hefur gengið ágætlega.
Nýjasta Batman myndin hefur gengið ágætlega. mynd/ afp.
Nýjasta Batman myndin, The Dark Knight Rises, féll um helgina úr efsta sæti yfir tekjuhæstu myndir í Bandaríkjunum.

Þetta er þriðja helgin sem myndin er sýnd en hún var tekjuhæsta myndin tvær fyrri helgarnar. Í efsta sæti að þessu sinni var hins vegar myndin The Bourne Legacy en tekjur hennar námu sem samsvarar 4,8 milljörðum íslenskra króna, eftir því sem fram kemur á vef The Washington Post. Í öðru sæti var ný mynd Wills Ferrel sem heitir The Campaign, en tekjur hennar námu um 3,3 milljörðum íslenskra króna. The Dark Knight Rises var svo í þriðja sæti með um 2,4 milljarða íslenskra króna.

Batman myndin hefur nú verið í sýningu í Bandaríkjunum í þrjár vikur og nema heildartekjurnar um 47 milljörðum króna. Mikil skelfing greip um sig í Colorado fylki og víðar þegar myndin var forsýnd þar 20. júlí síðastliðinn en þá hóf háskólaneminn James Holmes skothríð á miðri kvikmyndasýningu. Dan Fellman, yfirmaður dreifingardeildar hjá Warner Bros, segir í samtali við Washington Post að þetta atvik hafi án efa haft áhrif á aðsóknina að myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×