Viðskipti erlent

Peston: Getur SFO lifað af „Tchenguiz-skandalinn“?

Magnús Halldórsson skrifar
Vincent Tchenguiz.
Vincent Tchenguiz.
Robert Peston, viðskiptaritstjóri breska ríkisútvarpsins BBC, spyr að því í fyrirsögn pistils um aðgerðir bresku efnahagsbrotadeildarinnar, SFO, gegn Tchenguiz-bræðrunum Roberti og Vincent hvort stofnunin geti lifað það af, að öllum málatilbúnaði deildarinnar hafi verið vísað frá dómi. Þá auki það enn á vandann að Vincent Tchenguiz hyggst fara í máli við SFO og krefjast 100 milljóna punda, jafnvirði um 19 milljarða króna, í bætur vegna þess fjárhagstjóns sem hann varð fyrir við aðgerðirnar gegn sér.

Ítarlegt viðtal birtist á dögunum við Vincent Tchenguiz í Fréttablaðinu, þar sem hann tjáði sig um aðgerðir SFO og hvernig málin horfðu við honum.

Peston segir að SFO hafi aldri notið mikillar virðingar innan lögreglunnar í Bretlandi og ekki heldur innan Fjármálaeftirlitsins, sem líti á sig sem „varðhund" í City-hverfinu í London, þar sem stærstu fjármálastofnanir landsins eru með starfsemi.

Peston segir að SFO sé kerfisbundið fjársvelt og það sér þvert á það sem Fjármálaeftirlitið breska upplifi þessa dagana. Í fjárlögum fyrir 2008 til 2009 hafi SFO fengið 53 milljónir punda til ráðstöfunar, 2009 til 2010 hafi upphæðin verið komin niður í 36 milljónir punda og 2010 til 2011 hafi upphæðin verið 33 milljónir punda. Á sam tíma hafi fjárveitingar til breska fjármálaeftirlitsins, FSA, aukist um 11 prósent milli ára og hafi verið 75,4 milljónir punda.

Sjá má pistil Peston í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×