Viðskipti erlent

Tony Blair óttast að Bretar yfirgefi Evrópusambandið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tony Blair óttast að Bretar yfirgefi evruna.
Tony Blair óttast að Bretar yfirgefi evruna.
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, segist óttast mjög að Bretar muni ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu að yfirgefa Evrópusambandið.

Blair sagði einnig í samtali við þýska blaðið Die Zeit að ákvörðun um að ganga úr Evrópusambandinu yrði væntanlega tekin vegna þess að Bretum fyndist Evrópusambandið komið með of mikil völd.

David Cameron núverandi forsætisráðherra sagði í júlí að það væri mjög eðlilegt að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu. Skoðanakannanir benda reyndar til þess að Bretar myndu kjósa að yfirgefa Evrópusambandið, en Cameron hefur ekki enn ákveðið að láta slíka þjóðaratkvæðagreiðslu fara fram.

Blair sagði í samtali við Die Zeit, að hann væri viss um að áframhaldandi kreppa á evrusvæðinu myndi leiða til þess að verulega breytingar yrðu gerðar á Evrópusambandinu. Hann óttaðist að Bretar myndu ákveða að yfirgefa sambandið við þær kringumstæður.

Fjallað er ítarlega um samtal Blairs við Die Zeit á vef Daily Telegraph.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×