Viðskipti erlent

Forstjóri Lenovo gefur bónusgreiðslu til starfsmanna

Yang Yuanqing, forstjóri Lenovo.
Yang Yuanqing, forstjóri Lenovo. mynd/Wikimedia
Forstjóri Lenovo vakti athygli á dögunum þegar hann gaf bónusgreiðslu sína til starfsmanna fyrirtækisins. Aðeins lægra settir starfsmenn fengu hluta af greiðslunni en heildarupphæðin nam rúmlega 370 milljónum króna.

Yang Yuanqing hefur stjórnað fyrirtækinu um nokkurt skeið. Síðasta ár reyndist vera það besta sögu fyrirtækisins. Sölutekjur jukust þá um 73 prósent. Eiginfjárstaða Lenovo er metin á 30 milljarða dollara eða það sem nemur 3730 milljörðum króna.

Alls fengu 10 þúsund starfsmenn hluta af bónusgreiðslunni. Hver og einn fékk því um 37 þúsund krónur í sinn vasa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×