Viðskipti erlent

Stjörnur og áhrifamenn fjárfesta í Stamped

mynd/Stamped.com
Mikið hefur verið rætt um smáforritið Stamped síðustu vikur. Í dag var nýjasta útgáfa þess kynnt en um leið var opinberað hverjir hafa fjárfest í þessum litla en þó ört stækkandi samskiptamiðli.

Á meðal fjárfesta eru bæði áhrifamenn úr skemmtanaiðnaðinum í Bandaríkjunum sem og nokkrir af helstu tæknispekingum veraldar. Þannig hafa Justin Bieber, Ellen Degeneres, Ryan Seacrest og fleiri stjörnur dælt fjármagni í fyrirtækið.

Þá hefur stjórnarformaður Google, Eric Schmidt, einnig fjárfest í félaginu sem og fyrirtækin The New York Times co., Columbia Records og eignastýringarsjóðurinn Bain Capital.

Stamped byggir á afar einfaldri hugmynd. Notandi gefur sinn gæðastimpil á hverskonar þjónustu og afþreyingu sem hann síðan deilir með vinum sínum. Smáforritið var fyrst gefið út í nóvember á síðasta ári, síðan þá hefur lítið farið fyrir því.

Í dag fékk forritið sína fyrstu stóru uppfærslu. Augljóst er að forritarar og verkfræðingar Google hafa komið að uppfærslunni enda er notendaviðmót smáforritsins mun þægilegra en áður.

Hægt er að nálgast Stamped hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×