Viðskipti erlent

Blóðugur niðurskurður á Spáni

BBI skrifar
Blóðug kona umkringd óeirðarlögreglumönnum eftir átök í Madrid í dag.
Blóðug kona umkringd óeirðarlögreglumönnum eftir átök í Madrid í dag. Mynd/AFP
Ríkisstjórn Spánar kynnti í dag víðfermar niðurskurðaráætlanir og skattahækkanir. Óeirðir og mótmæli urðu á götum landsins og í Madrid kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu.

Aðhaldsaðgerðirnar eru í tengslum við neyðarlán sem Spánn fékk frá Evrópusambandinu til að standa undir fjármögnun bankakerfisins. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fagnað aðgerðunum sem boðaðar voru í dag.

Forsætisráðherran Mariano Rajoy sagði þingheimi að aðhaldsaðgerðir hans yrðu að koma til framkvæmda strax. Meðal aðgerðanna mun virðisaukaskattur hækka úr 18% í 21%. Jólabónus ríkisstarfsmanna verður afnuminn. Styrkir til stjórnmálaflokka minnka um 20% á næsta ári. Atvinnuleysisbætur lækka. Uppi eru áform um nýja óbeina skatta á orku. Ýmis samgöngumannvirki verða einkavædd.

Virðisaukaskattahækkunin er ekki í samræmi við kosningaloforð Rajoy. Það er ekki lengra en 6 mánuðir síðan Rajoy fullyrti að ekki stæði til að hækka virðisaukaskattinn. Breyttar aðstæður hafa valdið þessari stefnubreytingu hans að eigin sögn.

Lífeyrisþegar munu aftur á móti halda óbreyttum kjörum í bili og þar með tekst Rajoy að standa við eitt af kosningaloforðum sínum.

Í Madrid kom til átaka þegar námuverkmenn mótmæltu. Lögregla skaut gúmmíboltum að verkamönnunum sem nutu stuðnings fjölda fólks. Einhverjir slösuðust og nokkrir voru handteknir.

Leiðtogar iðnaðar í landinu vara við því að aðgerðir stjórnarinnar muni fæla ferðamenn frá landinu sem muni kosta þúsundir manna atvinnuna.

Spánn er fjórða stærsta hagkerfi evrusvæðisins. Aðstæður í landinu eru vissulega átakanlegar. Atvinumál eru í miklum ólestri. Einn af hverjum fjórum er atvinnulaus og aðeins annað hvert ungmenni hefur vinnu. Ástandið í atvinnumálum er því svartara en í Grikklandi. Húsnæðisverð hefur fallið um 25% frá árinu 2008 og bankakerfi landsins er á brauðfótum.

Umfjöllun BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×