Viðskipti erlent

Stærsti banki Evrópu í peningaþvætti fyrir fíkniefnagengi í Mexíkó

HSBC stærsti banki Evrópu stundaði peningaþvætti um allan heiminn og þar á meðal fyrir stærstu fíkniefnagengin í Mexíkó.

Þetta er niðurstaða rannsóknar á vegum þingnefndar í öldungadeild Bandaríkjaþings. Fyrir utan gífurlegar fjárhæðir frá mexíkönskum fíkniefnagengjum sem þvegnar voru í bankanum greinir þingnefndin einnig frá grunsamlegum greiðslum sem fóru í gegnum bankann frá löndum eins og Sýrlandi, Cayman eyjum, Íran og Saudi Arabíu.

Fram kemur hjá nefndinni að bankaeftirlit Bandaríkjanna hafi brugðist þegar kom að því að hafa eftirlit með bankanum. Þá kemur einnig fram hröð gagnrýni á það sem kallað er mjög slælegt innra eftirlit hjá bankanum sjálfum.

HSBC, sem er með höfuðstöðvar í Bretlandi, segir að bankinn búist við því að verða dreginn til ábyrgðar fyrir það sem fór úr skorðunum í starfsemi hans.

Fyrrgreind rannsókn hefur staðið yfir í rúmt ár og á þeim tíma fór nefndin í gegnum um 1,4 milljónir skjala og tók skýrslur af 75 stjórnendum hjá HSBC. Æðstu yfirmenn bankans hafa verið kallaðir til yfirheyrslna hjá þingnefndinni en þær eiga að hefjast í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×