Viðskipti erlent

Moody's segir horfurnar neikvæðar fyrir Barclays

Magnús Halldórsson skrifar
Bob Diamond.
Bob Diamond.
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody's breytti horfum í mati sínu á stöðu Barclays bankans í neikvæðar vegna áhrifa vaxtasvindlsins bankans á starfsemi hans. Bankinn samþykkti að greiða 290 milljónir punda í sekt, jafnvirði um 57 milljarða króna, vegna lögbrota sem framin voru í október 2008 þegar starfsmenn Barclays fölsuðu vaxtaálag á skuldir bankans með markaðsmisnotkun.

Bob Diamond, sem sagði upp störfum sem forstjóri bankans, kom fyrir þingnefnd í Bretlandi í gær og tjáði sig um málið eins og það horfði við honum. Hann sagði m.a. að hann hefði orðið reiður, sorgmæddur og vonsvikinn þegar hann las tölvupósta miðlara bankans sem sögðust ætla að skála í kampavíni ef aðgerðir þeirra, sem voru ólöglegar, myndu hafa þau áhrif að þeir fengju hærri bónusgreiðslur.

Diamond sagði enn fremur að ekkert afsakaði lögbrot starfsmanna bankans, og það væri hans skoðun að það ætti að lögsækja þá sem stóðu með vítaverðum hætti að málum. Hann sagðist ekki hafa fengið upplýsingar um hvernig í málinu hefði legið fyrr en breska fjármálaeftirlitið kynnti honum niðurstöður rannsóknar sinnar í síðasta mánuði.

Hann fór síðan ítarlega í gegnum atburðarásina haustið 2008, m.a. þegar Paul Tucker, einn framkvæmdastjóra Seðlabanka Bretlands, Englandsbanka, ræddi við Diamond um það að hann væri undir þrýstingi frá háttsettum mönnum í ríkisstjórn Gordons Browns um að vaxtaálag á breska banka, þar á meðal Barclays, myndi lækka. Diamond sagðist hafa komið þessum upplýsingum til yfirmanns miðlara bankans, sem hafi litið svo á að þeir ættu að grípa til aðgerða til þess að lækka álagið, enda hafi þröng staða á fjármálamörkuðum á þessum tíma ógnar fjármálakerfi landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×