Viðskipti erlent

Norðmenn stöðva olíuframleiðslu í vikunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Olíu- og gasframleiðsla mun stöðvast í Noregi í vikunni. Ástæðan er sú að hart er deilt um eftirlaunamál og virðist lausn á deilunni ekki vera í sjónmáli. Ítrasta tilraun til þess að ná sátt var reynd í gær, án árangurs.

Norsk olíuframleiðslufyrirtæki segja að stöðvun vinnslunnar muni hefjast á morgun en það mun taka nokkra daga að stöðva hana að fullu. Félagar í þremur af stærstu verkalýðsfélögum Noregs hafa verið í verkfalli í fimmtán daga. Eftir því sem fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC, snýst deilan um það að verkamenn vilja fá heimild til þess að láta af störfum 62 ára gamlir og halda fullum eftirlaunum.

Eins og fram kom í frétt á Vísi fyrir helgi hefur verkbannið nú þegar kostað norska olíuframleiðendur meðlimi OLF um 2,3 milljarða norskra kr. eða um 50 milljarða kr. hingað til. Með verkbanninu verða 6.500 starfsmenn í viðbót við þá sem eru í verkfalli útilokaðir frá vinnu sinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×