Frábær opnun í Hítará: 11 stórlaxar af 16 20. júní 2012 17:51 Hver áin af annarri opnar með látum. Hítará er full af laxi. Mynd/Bjarni Júlíusson
Veiði hófst í Hítará á Mýrum á mánudaginn. Mikið er af laxi í ánni miðað við árstíma og byrjunin ein sú besta sem um getur, segir á heimasíðu SVFR. "Við náðum í skottið á veiðimönnum í morgun og höfðu þeir þá þegar landað 16 löxum og misst nokkuð. Átta þessara laxa voru stórlaxar yfir 70 cm og þrír yfir 80 cm. Öll áin er orðin virk, og sem dæmi þá veiddust tveir laxar í spútnikstað síðasta árs, Sveljanda. Venju samkvæmt er Breiðin aflahæsti staðurinn í opnunarhollinu, en í þetta sinnið er tæplega helmingurinn veiddur ofan Brúarfoss, í Langadrætti og Grettisstillum," segir í fréttinni. Þess má geta að aðeins er veitt á fjórar stangir fyrsta hálfa mánuðinn. Sem sagt frábær byrjun í Hítará og stórstreymt á morgun fimmtudag. Það lítur því vel út með veiði fyrir þá sem eiga veiðileyfi á næstunni. Þess má geta að í ljósi þess að lax er genginn Brúarfoss mega veiðimenn í Grjótá og Tálma búast við því að lax sé mættur í hliðarárnar. Fyrir þá sem ekki hafa fest sér veiðileyfi í Hítará í sumar þá er það því miður of seint, því öll veiðileyfi á aðalsvæðið eru uppseld. Örfáir dagar eru hins vegar lausir í haust á svæðinu sem kennt er við hliðarárnar Grjótá og Tálma. svavar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Miðfjarðará opnaði með 30 laxa holli Veiði Fluga dagsins: Góð í urriðann Veiði Þegar örflugurnar gefa best Veiði Ekkert að frétta úr Vífilsstaðavatni Veiði Kaldakvísl farin að gefa vænar bleikjur Veiði 197 laxar gengnir í gegnum teljarann í Langá á Mýrum Veiði Brúará er komin í gang Veiði Gæsaveiðin gengur vel Veiði Eystri Rangá komin í 2.050 laxa Veiði Laxveiðin hefst á sunnudaginn Veiði