Veiði í einni lengstu á landsins að hefjast 18. júní 2012 08:00 Á veiðum í Skjálfandafljóti. Mynd / Lax-á
Veiði hefst í Skjálfandfljóti í dag. Á síðustu fimm árum hafa fyrstu tvær vikurnar gefið að meðaltali 43 laxa. Heildarveiðin síðasta sumar var um 600 laxar. Skjálfandafljót er 180 kílómetra langt og fjórða lengsta á landsins. Það á uppruna sinn í norðvestur hluta Vatnajökuls, nánar tiltekið í Vonarskarði sem er á milli Vatnajökuls og Tungnafellsjökuls, og fellur til sjávar í botni Skjálfanda. Vatnið í fljótinu er ekki eingöngu jökulvatn heldur rennur mikið af lindarvatni í það undan Ódáðahrauni. Á vef Lax-á segir að veðrið síðustu vikur hafa verið mjög hagstætt. "Fyrsta vika veiðitímabilsins í Skjálfandafljóti hefur oft gefið góða veiði og er uppistaða aflans á þessum tíma jafnan nýgengnir steraboltar," segir á vef Lax-Á. "Á undanförnum fjórum árum hefur fyrsta vika veiðitímabilsins verið mjög góð. Að lax virðist ganga snemma er ekki til að minnka bjartsýni manna fyrir góðri opnun og víst er að stórstreymið þann 21. júní mun ekki heldur skemma fyrir."
Stangveiði Mest lesið Gæti stefnt í mjög gott sumar í Eystri Rangá Veiði Lifnar aðeins yfir Blöndu Veiði Góðu tímibili lokið í Steinsmýrarvötnum Veiði Stefnir í gott veður síðustu helgina í rjúpu Veiði Eins og í lygasögu Veiði Veiðikortið 2017 komið út Veiði Meðalþyngdin 12 pund úr Fnjóská Veiði Farið að sjást í fyrstu laxagöngurnar Veiði Nýr Veiðimaður kominn út Veiði Góður lokasprettur í Jöklu Veiði