Viðskipti erlent

Krugman: Evruragnarrök hugsanlega framundan

Magnús Halldórsson skrifar
Paul Krugman.
Paul Krugman.
Paul Krugman, prófessor í hagfræði og Nóbelsverðlaunahafi árið 2008, spáir „evruragnarrökum" á næstu mánuðum, ekki síst vegna óumflýjanlegs falls Grikklands með tilheyrandi hliðaráhrifum á nágrannaríkin Spán og Ítalíu. Hann spáir því að þetta gerist á næstu mánuðum, ekki árum.

Þetta kemur fram í nýjasta pistli Krugmans sem birtur er á vefsvæði New York Times.

„Grikkir munu yfirgefa evruna, mjög líklega í næsta mánuði," segir í pistli Krugmans. Hann segir að þetta muni kalla fram áhlaup á spænska og ítalska banka, sem margir hverjir muni reyna að færa peningana sína til Þýskalands. „Bann við fjármagnsflutningum mun hugsanlega geta komið í veg fyrir þetta" og aðstoð frá Seðlabanka Evrópu getur komið í veg fyrir að bankar hrynji.

Þá segir Krugman að Þjóðverjar verði að samþykkja óbeinar skuldbindingar vegna vandamála Spánar og Ítalíu, einkum Spánar, þar sem nauðsynlegt sé að halda lántökukostnaði niðri með því að leggja fram frekari ábyrgðir fyrir skuldum landsins. Þá sé einnig nauðsynlegt að hækka verðbólgumarkmið á evrusvæðinu til þess að takast á við aðstæðurnar. Ef þetta sé ekki gert, þýði það endalok evrunnar.

Pistil Krugmans má sjá hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×