Viðskipti erlent

James Cameron ætlar að breyta heiminum

James Cameron
James Cameron mynd/AFP
Nafntogaðir auðmenn í Bandaríkjunum munu opinbera nýtt geimfyrirtæki í næstu viku. Talið er að fyrirtækið muni sérhæfa sig í námugröfti á smástirnum.

Á meðal þeirra sem koma að fjármögnun verkefnisins og rekstri eru: Eric Schmidt, stjórnarformaður Google, Larry Page og Sergey Brin, stofnendur Google sem og leikstjórinn og uppfinningamaðurinn James Cameron.

Fyrirtækið verður formlega opinberað í Seattle, 24. apríl næstkomandi.

Í tilkynningu sem barst fjölmiðlum fyrr í vikunni kemur fram að fyrirtækið muni heita Planetary Resources.

„Markmið verkefnisins er að auka við auðlindaforða Jarðarinnar og þar með dæla billjónum í verga heimsframleiðslu," segir í tilkynningunni. „Þetta sprotafyrirtæki mun skapa nýjan iðnað og um leið boða endurskilgreiningu á því sem við þekkjum sem náttúruauðlindir."

Þá kemur einnig fram að fyrirtækið muni sækjast eftir því að sameina tvo veigamikla þætti: geimkönnun og auðlindavinnslu á fjarlægum .

Sergey Brin, Eric Schmidt og Larry Page.mynd/Time
Hvergi kemur fram að Planetary Resources hafi í hyggju að hefja námugröft á smástirnum. Hins vegar hefur sá möguleiki lengi verið ræddur meðal vísindamanna og er tæknin til þessa sögð vera til staðar.

Ljóst er að gríðarlegt fjármagn þarf til að standa undir slíku ævintýri.

James Cameron, sem er 57 ára gamall, leikstýrði og framleiddi kvikmyndirnar Titanic og Avatar, en þær eru arðbærustu kvikmyndir allra tíma. Nýlega komst Cameron niður á botn Maríana-gilsins í Kyrrahafi eða niður á 11 kílómetra dýpi - er þetta mesta hafdýpi Jarðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×