Helgi og Helgi Magnús Halldórsson skrifar 28. apríl 2012 14:35 Helgi Magnússon fjárfestir, og Helgi Magnússon, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, hafa báðir notið góðs af uppgangi Marels undanfarið. Markaðsvirði þess fyrirtækis hefur aukist um tæp 300 prósent frá því fjármálakerfið hrundi og krónan með. Rekstur Marels er traustur og er að styrkjast, en innri vöxtur Marels hefur verið mikill og tækifærin fyrir félagið aukist jafnt og þétt á stærsta markaðssvæðinu, Asíu. Ef Marel fær góðar viðtökur á þeim markaði og tekst að ná góðri fótfestu, eins og margt bendir til raunar, þá getur þetta haft miklar jákvæðar afleiðingar og stækkað fyrirtækið hratt. Tækifærin eru bæði stór og mikil. Helgi á, eða tengist persónulega, 5.785.044 hlutum í Marel samkvæmt síðustu tilkynningu Kauphallar Íslands. Hún var birt í tilefni af um 75 milljóna kaupum hans á Marel-bréfum nýlega. Miðað við markaðsverðmæti hluta félagsins í dag nemur verðmæti hlutanna tæplega einum milljarði. Lífeyrissjóður verzlunarmanna á verðmæta eign í Marel, 6,8 prósent hlut, sem er virði ríflega átta milljarða. Sjóðurinn er þriðji stærsti einstaki hluthafi Marels. Helgi Magnússon fjárfestir hefur notið góðs af því hversu þétt Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur staðið á bak við Marel. Ekki síst eftir hrun, hefur sjóðurinn ítrekað tekið þátt í hlutafjáraukningum þegar þrengdi að fjármögnun fyrir félagið. En það sem skiptir mestu máli, og hefur verið einkar gott fyrir Helga Magnússon fjárfesti, er að hann og Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, eru óhjákvæmilega samstíga. Enda sami maðurinn. Það eina sem er svolítið óljóst, er hvort það er Helgi Magnússon fjárfestir eða Helgi Magnússon stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sem á sæti í stjórn Marels. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Magnús Halldórsson Mest lesið Látum þá hlæja því þeir tapa hvort sem er Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Halldór 21.09.2024 Halldór Ég vil ekki þennan veruleika Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir Skoðun Alzheimer - mennska og mildi Ragnheiður Ríkharðsdóttir Skoðun Grímulaus grænþvottur Dofri Hermannsson Skoðun Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason Skoðun Skortur á serótónín Gunnar Dan Wiium Skoðun Lýðheilsa bætt um 64 milljarða Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Þegar sorgin bankar upp á Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Er krónan að valda átökum á milli kynslóða? Guðmundur Ragnarsson Skoðun
Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason Skoðun
Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði? Andri Snær Magnason Skoðun